Náttúruverndarfélagið Skrauti var stofnað 14. febrúar 2021 að frumkvæði Snorra Baldurssonar. Samtökin eru nefnd eftir fjallinu Skrauta í Vonarskarði. Baráttumál þeirra fyrst í stað er friðlýsing landslagsheildar Vonarskarðs sem náttúruvés í skilningi náttúruverndarlaga nr. 60/2013. Með landslagsheild er átt við Vonarskarðsöskjuna milli Tungnafellsjökuls og Bárðarbungu að vestan og austan og milli upptakakvísla Skjálfandafljóts og Köldukvíslar að norðan og sunnan.
Í kjölfar ákvörðunar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra haustið 2025 að heimila vélknúna umferð um Vonarskarð frá 1. september ár hvert og þar til svæðið verður ófært ákváð stjórn félagsins að víkka út tilgang þess og er tilgangurinn nú að stuðla að sjálfbæru samfélagi. Félagið vinnur jafnframt að verndun landslagsheildarinnar Vonarskarðs í Vatnajökulsþjóðgarði til framtíðar og að verndun óbyggðra víðerna Íslands.
Helsta verkefni félagsins verður skipulaggning og þátttaka í Sólarpönk: Bjartsýnishátíð Sólarpönk hugmyndafræðin byggir á framtíðarsýn þar sem mannkynið lifir í sátt við náttúruna. Sólarpönk leggur áherslu á endurnýjanlega orku, vistvæna hönnun, hringrásarhagkerfi, líffræðilega fjölbreytni og ábyrga nýtingu auðlinda. Það snýst þó ekki eingöngu um umhverfisvernd heldur einnig um félagslega sjálfbærni, samvinnu og réttláta skiptingu gæða. Sólarpönk hvetur okkur til að ímynda okkur og skapa samfélag þar sem tækniframfarir, náttúra og mannleg velferð fara saman. Í stað þess að einblína á ógnir umhverfisvandans leggur sólarpönk áherslu á von, sköpunarkraft og raunhæfar lausnir.
Hátíðin fer fram á vorjafndægrum sem er í takti við hugmyndafræðina, vöxt og nýtt upphaf. Dagskráin samanstendur af málþingi, vinnustofum og listasmiðjum og öðrum uppákomum.
Stjórn:
Þuríður Helga Kristjánsdóttir, formaður
Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir
Sólveig Hlín Kristjánsdóttir
Kristján Baldursson, varamaður
Stofnandi: Snorri Baldursson
Óbyggð, víðernakortlagningarverkefni á vegum Náttúruverndarsamtaka Íslands, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, Skrauta, og Ungra umhverfissinna